AXIS kaupir Sökkul

AXIS hefur gengið frá kaupum á vélum og lager Sökkuls auk þess að taka við helstu umboðum þess fyrirtækis. Lykilstarfsmenn Sökkuls hafa verið ráðnir og munu sinna þeim verkefnum sem Sökkull hefur um árabil verið með. Fyrirtækið verður flutt hingað á Smiðjuveginn þannig að öll þjónusta verður á sama stað. Þetta breikkar þann grundvöll sem AXIS/Sökkull hefur til þess að þjóna fyrirtækjum og stofnunum á sem bestan veg. Auk skrifstofuhúsgagna og lausna bjóðum við nú, kerfisveggi, felliveggi, innihurðir og margt fleira.

Hafið samband við skrifstofu AXIS í síma 535-4300 eða í símanúmer Sökkuls 577-6100 og fáið samband við sölumann.

 

sokkull.is