AXIS hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki, fimmta árið í röð og hefur því verið framúrskarandi frá upphafi. Þetta árið voru 577 fyrirtæki framúrskarandi af yfir 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá á Íslandi. Þau fyrirtæki sem hafa verið framúrskarandi öll fimm árin eru hins vegar ekki nema rétt um 100 talsins. Þau fengu af því tilefni gullmerki Creditinfo.