fbpx

LÁTTU ÞAÐ GANGA

Kynningarátakið Íslenskt – láttu það ganga, hvetur alla til að velja íslenska verslun, framleiðslu, hugvit og upplifanir. Auglýsingarnar voru m.a. teknar upp hjá AXIS.

,,Við tilheyrum öll hringrás sem knýr hagkerfið okkar. Þegar við veljum innlenda þjónustu, kaupum innlenda vöru og skiptum við innlend fyrirtæki höfum við keðjuverkandi áhrif. Við höldum atvinnustarfsemi gangandi, verndum störf og sköpum ný, aukum verðmætasköpun og stuðlum að efnahagslegum stöðugleika. Þannig látum við þetta allt saman ganga,” segir á vefsíðu gjoridsvovel.is þar sem hægt að nálgast upplýsingar um átakið.