STÓLAR

LAUF er lína af sterkum og sveigjanlegum stólum sem fá má í ýmsum útfærslum. Stólarnir eru léttir, meðfæranlegir og staflanlegir. Mismunandi gerðir af stelli má fá undir stólana, í krómi eða sérlit, allt eftir þörfum hvers og eins. Stólarnir eru fjölnota, með fjaðrandi baki og fáanlegir í fimm litum. 100% endurvinnanlegt efni er í stólunum og þeir uppfylla staðal EN-1729 fyrir skólahúsgögn. Hjólavagn er fáanlegur fyrir staflanlega LAUF stóla.

 

Hér fyrir neðan má sjá teikningar sem sýna ýmsar útfærslur á skólastólum.

LAUF leikskólastóllinn frá AXIS er fallegur, vandaður og þægilegur í notkun. Íslensk hönnun og framleiðsla. Stóllinn er fjölnota, með fjaðrandi baki og fáanlegur í fimm litum. 100% endurvinnanlegt efni er í stólnum og hann uppfyllir EN-1729 staðal fyrir skólahúsgögn. 

Einnig eru til LAUF ungbarnastólar með öryggisslá og LAUF kennarastólar.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af LAUF stólum í MK.

Hér má sjá LAUF á meðal AXIS húsgagna sem kynnt voru á HönnunarMars 2013.

Hönnuður húsgagnanna er Sturla Már Jónsson, húsgagna- og innanhússarkitekt.

 

Sjá nánar í bæklingum:

LAUF   

LAUF – Leikskólastólar  

STRENDINGUR  

YFIRLIT

Hér má sjá LAUF stóla og fjölnotaborð í húsgagnalínunni BYLGJA.

Nánari upplýsingar um skólahúsgögn AXIS veitir Hlynur Þór Sveinbjörnsson í tölvupósti eða síma 535-4308.

AXIS
Privacy Overview

This website uses cookies so that we can provide you with the best user experience possible. Cookie information is stored in your browser and performs functions such as recognising you when you return to our website and helping our team to understand which sections of the website you find most interesting and useful.