Vefarastræti 24-26

Við Vefarastræti 24-26 hefur MótX lokið við byggingu á glæsilegu fjölbýlishúsi í nýju hverfi í Mosfellsbæ. Um er að ræða 32 íbúðir. Byggt var í sátt við álfa og menn, en umræða hefur verið um álfa og huldufólk í sjálfum Sauðhól sem stendur við byggingarreitinn. Allar innréttingar í eldhús, bað, herbergi og forstofu auk innihurða […]

Hlíðarvegur 57

Við Hlíðarveg 57 í Kópavogi hefur Mótandi byggt nýtt glæsilegt hús með fjórum íbúðum. Húsið er vel staðsett innan um eldri hús í þessu rótgróna hverfi í Kópavogi, á mjög skemmtilegum stað. Eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar og fataskápar í herbergjum og forstofu eru frá AXIS. ” order_by=”sortorder” order_direction=”ASC” returns=”included” maximum_entity_count=”500″]

Nýr tölvufræsari

AXIS hefur tekið í notkun nýjan tölvufræsara. Fræsarinn er einn fárra fimm ása fræsara í landinu sem eykur verulega möguleika á flóknum fræsingum. Nýja vélin mun einnig auka afköst fyrirtækisins og halda framleiðslunni í hæsta gæðaflokki.  Fjárfestingin er liður í stefnu fyrirtækisins að bæta samkeppnishæfni þess á síbreytilegum markaði þar sem samkeppnisaðilar eru gjarnan stórir erlendir framleiðendur. Í […]

Jólastyrkur í stað jólakorta

AXIS styrkir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs fyrir jólin 2016 í stað þess að senda út jólakort. Nefndin var stofnuð árið 1968 af Kvenfélagasambandi Kópavogs og starfar hún innan vébanda þess. Störf Mæðrastyrksnefndar eru unnin í sjálfboðavinnu og felast í því að úthluta mat, matarkortum, leikföngum, fatnaði og öðrum nauðsynjum til þeirra sem ekki ná endum saman. Mæðrastyrksnefnd […]

ATHVARF / hljóðdempandi skilrúm

ATHVARF er nett vinnustöð gerð úr hljóðdempandi skilrúmum. Uppsetning er afar einföld – skilrúmin eru fest saman með rennilás, borðpötunni komið fyrir og vinnustöðin er tilbúin til notkunar. ATHVARF hentar hvar sem er og getur staðið eitt sér eða raðast saman á margvíslegan hátt. Á skilrúmin er hægt að festa ýmsa aukahluti svo sem minnistöflu, […]

HönnunarMars 2016

Opnunarteiti HönnunarMars 2016 var haldið 10. mars 2016. AXIS tekur þátt í HönnunarMars sem nú fer fram í áttunda sinn, dagana 10. – 13. mars í Hafnarhúsinu. Þar sýnir AXIS nýja hönnun sem kallas Athvarf. Það er Sturla Már Jónsson, húsgagna- og innanhússarkitekt, sem hannaði.  

Nýtt fangelsi á Hólmsheiði

Nýtt fangelsi á Hólmsheiði verður opnað innan skamms. Byggingin er 3500 m² að stærð með 56 fangaklefum og sérstakri deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Fangelsið er hannað með þeim hætti að hægt verður að stækka og minnka fangadeildir eftir þörfum sem gera mun nýtingu fangelsisins betri. Öll aðstaða fanga […]

Hraungata 3-17 í Urriðaholti

Nýjar glæsilegar íbúðir við Hraungötu 3-17 í Garðabæ eru langt komnar. Útsýnið er glæsilegt á þessum frábæra stað í Urriðaholti. Eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar, fataskápar og innihurðir eru frá AXIS. Byggingaraðilar eru G. Leifsson og Þrastarverk.  

Tímarit.is

Í tilefni af 80 ára afmæli AXIS árið 2015 er áhugasömum um sögu fyrirtækisins bent á vefsíðuna timarit.is en þar má finna viðtöl, fréttir og gamlar auglýsingar tengdar AXIS. Hér fyrir neðan má sjá brot af því sem birst hefur í dagblöðum og tímaritum hér á landi tengt AXIS húsgögnum í gegnum tíðina. Afrit fengið […]

Ný tölvustýrð plötusög AXIS

AXIS hefur tekið í notkun nýja tölvustýrða plötusög sem líklega er sú fullkomnasta á landinu. Með söginni er allt efni sagað niður sem notað er í framleiðslu innréttinga hjá AXIS. Það var Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra sem tók vélina formlega í notkun í tilefni af 80 ára afmæli AXIS. Það voru ítalskir uppsetningamenn á vegum […]

80 ára afmæli AXIS

Í tilefni af 80 ára afmæli AXIS, þá var haldið afmælishóf föstudaginn 30. október 2015. Margt góðra gesta mætti í hófið sem var vel heppnað í alla staði. Í tilefni tímamótanna tók AXIS í notkun nýja tölvustýrða plötusög sem Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra ræsti faglega. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá afmælishófinu. ” order_by=”sortorder” […]

Hofsstaðaskóli

Ný viðbygging við Hofsstaðaskóla hefur verið tekin í notkun. Nýbyggingin er um 1100 m² að stærð, á tveimur hæðum. Á neðri hæð eru nýjar verkgreinastofur þ.e. stofur fyrir náttúrfræði, heimilisfræði, myndmennt, smíði og textíl. Á efri hæð eru fyrst og fremst ný stjórnunarrými svo sem afgreiðsla, skrifstofur og aðstaða starfsmanna. Hurðir og gluggar í stálkörmum, […]

Stóll frá 1958

Stóll frá 1958

Einn af þeim stólum sem framleiddir voru af Axel Eyjólfssyni (AXIS) í ágúst 1958, kom í smávægilega viðgerð hjá AXIS á dögunum. Líma þurfti eitt horn á setu og lítur stóllinn mjög vel út í sinni upprunalegu mynd, 57 ára gamall. Á árunum 1950 til 1965 var mikið framleitt af stólum, borðum, borðstofusettum, skenkum og […]

Álfhólsvegur 22

Afhending á glæsilegum íbúðum við Álfhólsveg 22 er hafin. Um er að ræða nýtt og vel staðsett fjölbýlishús í rótgrónu hverfi í Kópavogi. Eldhúsinnréttingar með steinborðplötum auk innihurða og fataskápa í herbergjum og forstofu eru frá AXIS. Þá eru hurðir í geymslum einnig frá AXIS. Sjá nánar á myndum hér fyrir neðan. Byggingaraðili er Mótandi.

Kerfis- og felliveggir

Starfsmenn AXIS hafa staðið í ströngu síðustu mánuði og ár við uppsetningu á kerfis- og felliveggjum hjá fyrirtækjum og stofnunum þessa lands. Nú hafa verið settar inn myndir frá nokkrum af síðustu verkefnum þessu tengt inn á axis.is undir kerfis- og felliveggir. Hér fyrir neðan má einnig sjá sömu myndasöfn. Advania   Allianz   ASÍ […]

Nýtt Center hótel

Við Laugaveg 120 opnar nýtt Center hótel sumarið 2015. Þetta er sjötta Center hótelið í Reykjavík og mun bera nafnið Miðgarður. Iðnaðarmenn hafa verið að störfum í húsinu og það styttist í opnun hótelsins. Allar innréttingar í húsinu eru frá AXIS. Um er að ræða barinn á jarðhæð, borð, náttborð, skrifborð og vaskaskápa. Notaður var […]

Icelandair hótel

Icelandair hótel Reykjavík Marina hefur verið stækkað. Þetta glæsilega hótel í hjarta borgarinnar hefur einstakan karakter. Frumleg íslensk nútímahönnun í bland við gamla muni úr slippnum einkenna hótelið sem hefur þægindin í fyrirrúmi og er einnig skreytt á skemmtilegan hátt með ýmsum munum sem vekja athygli. Útsýnið yfir hafið og Esjuna og slippurinn beint fyrir […]

ASÍ húsið Guðrúnartúni

ASÍ húsið við Guðrúnartún 1 (áður Sætún 1) hefur tekið breytingum og verið stækkað. Í eldri hluta hússins hafa verið gerðar endurbætur og nýji hlutinn er talinn vel heppnaður. Þarfaþing var aðalverktaki við allar framkvæmdir hússins og AXIS sá um smíði og uppsetningu á glerveggjum, hurðum og innréttingum. Hér fyrir neðan má sjá myndir tengdar […]

Heimsóknir

AXIS er opið fyrir heimsóknum skólanema, fyrirtækja o.fl. Algengt er að gestir komi til að skoða verksmiðju fyrirtækisins og er AXIS boðið og búið að sýna og kynna starfsemi sína fyrir áhugasömum. Nýlega hafa heimsótt AXIS nemar frá Listaháskóla Íslands og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sem skoðuðu verksmiðju fyrirtækisins og einnig starfsmenn MótX. Þá hafa nemar […]

AXIS húsgögn

Góð verkefnastaða AXIS

Verkefnastaða AXIS hefur sjaldan verið betri. Starfsfólk fyrirtækisins er að vinna í ýmsum verkefnum, s.s. innréttingar og hurðir í þrjú hótel, innréttingar og hurðir í þrjá skóla, innréttingar í yfir 150 íbúðir, glerveggi og hurðir í þrjú stór verkefni auk ýmissa smærri. Þá er eitt af verkefnunum í flugstöðinni í Keflavík auk ýmissa verkefna fyrir […]